Gott hjá Jóhönnu !

Nú er bara að vona að þetta gangi vel og greiðlega fyrir sig og að þegar greining er komin verði næg úrræði fyrir börnin. Þarna eru að sjást þess skýr  merki að Samfylkingin er komin í stjórn. Ég hef líka heyrt að starfsfólk félagsmálaráðuneytisins hafi varla getað litið upp síðan Jóhanna tók við ráðuneytinu. Þar var allt sett á fullt frá fyrsta degi.

Lagabreytingin um að sjötugir og eldri gætu unnið eins og þá lysti án þess að það skerti greiðslur frá almannatryggingum var hins vegar beint upp úr stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins og bjánaleg eftir því. Ég get a.m.k. ekki séð að þessar breytingar hjálpi mikið Eflingarkonunum og körlunum sem ég hef verið að kenna á starfslokanámskeiðum. Oft eru þau orðin gersamlega útslitin eftir að hafa unnið erfiðisvinnu meira og minna frá unglingsaldri. Það hjálpar þeim ekkert að mega vinna eftir 70 ára aldur án þess að þær tekjur skerði. Það væri frekar að hækka tekjutryggingu (sem kemur þeim best sem minnst hafa) og minnka skerðingar vegna lífeyrisstjóðstekna. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar ganga í þveröfuga átt, þær hjálpa þeim sem vel standa en síður hinum.

Nú er bara að bíða eftir því að Jóhanna láti til sín taka í málefnum eldri borgara og öryrkja. Lögin um afnám tekjuteningar eftir sjötugt eru alltof lituð af hugmyndum sjálfstæðismanna.


mbl.is Teymi stofnuð til að vinna á biðlistum eftir greiningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Sammála - þarna eru fingraför Samfylkingarinnar að koma fram með ljósum hætti, vona að þau eigi eftir að verða út um allar grundir áður en kjörtímabilið rennur á enda. **)

Kristín Dýrfjörð, 26.6.2007 kl. 14:47

2 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Nákvæmlega!

Ingibjörg Stefánsdóttir, 26.6.2007 kl. 15:49

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég ætla í 1 ár í diplómunám til kennararéttinda kæra vinkona...flottur pistill!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 26.6.2007 kl. 21:25

4 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Gangi þér vel í náminu Anna. Er það í Kennó eða HÍ?

Ingibjörg Stefánsdóttir, 27.6.2007 kl. 09:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband