Forgangsröðun meirihlutanna

Það er kominn nýr meirihluti í Reykjavík. Fyrsti nefndarformaðurinn sem heyrist um er formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.  Guðfaðir nýja meirihlutans; Kjartan Magnússon, gegnir nú því embætti. Síst vil ég gera lítið úr mikilvægi Orkuveitunnar. Þau störf sem þar eru unnin eru auðvitað afar mikilvæg.

Það eru þó fleira mikilvægt en vatn og rafmagn. Það er ekki síður mikilvægt að hugsað sé um velferð barnanna okkar. Ekki síst þeirra barna sem búa við erfiðar og jafnvel óviðunandi aðstæður, t.d. á ofbeldis- eða óregluheimilum eða hafa lent á glapstigum. Þá getur þurft að grípa inn í með stuttum fyrirvara. Til þess höfum við Barnaverndarnefnd. Seta í slíkri nefnd er örugglega mjög erfið enda hefur komið í ljós að rangar ákvarðanir barnaverndarnefnda fortíðarinnar hafa haft ófyrirsjáanlegar og á stundum hræðilegar afleiðingar.

Nú kemur í ljós að sjálfstæðismenn skipuðu í embætti formanns Barnaverndarnefndar Reykjavíkur, konu sem engan áhuga hefur á formennskunni og biðst undan þessarri vegtyllu. Framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna segir hér hafa verið um handvömm að ræða. Skyldi þessi ,,handvömm" vera táknræn fyrir virðingarröð embættanna í huga sjálfstæðismanna? Virðingarröð sem setur efst vellaunaða formennsku í OR en neðst formennsku í Barnaverndarnefnd. Nefndinni þar sem rætt er um mál ,,óhreinu barnanna hennar Evu", þeirra sem er óþægilegt að hugsa um og hafa hvort sem er alltaf verið til tómra vandræða. Það er embættið sem verður útundan í kaplinum sem þurfti að láta ganga upp með svo miklum hraði að ekki gefst tóm til að staðfesta vilja allra þeirra sem útvaldir eru til að gegna formennsku. 

En það skiptir kannski engu máli. Forgangsröðunin er önnur. Nýi meirihlutinn byrjaði á því að lækka fasteignaskatta, lækkun sem skilar meðalheimilum í mesta lagi nokkur þúsund krónum á ári. Það skiptir flesta litlu. Hitt skiptir máli að geta treyst á leikskóla fyrir börnin sín og að ekki þurfi að senda þau heim vegna skorts á starfsfólki.  

Mér hugnast betur forgangsröð meirihlutans sem undir forystu Dags B. Eggertssonar hóf starf sitt á að samþykkja sérstaka fjárveitingu til að gera betur við þá sem sinna umönnunarstörfum á vegum borgarinnar. Sá sami meirihluti lauk starfi sínu á því að bjarga Kolaportinu. Stað sem fjöldi fólks sækir um hverja helgi en átti að fórna fyrir bílastæði.  

Ef vinnubrögð í anda þessarar ,,handvammar" eru það sem koma skal í stjórn borgarinnar mun málefnaskráin koma að litlu haldi. Jafnvel þó hún sé í sautján punktum.

 


mbl.is Skipuð formaður barnaverndarnefndar að henni forspurðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fráleitur samanburður

Blaðamaður tuttugu og fjögura stunda líkir mótmælunum í Ráðhúsinu í gær við Gúttóslaginn.

Það er rétt að í báðum tilvikum þurfti að fresta fundi í stjórn Reykjavíkur. Þar lýkur samlíkingunni. Reykjavík var bær árið 1932. Hún er borg nú. Fjöldi fólks slasaðist í Gúttóslagnum. Enginn beitti ofbeldi í Ráðhúsinu í gær.  Ég veit það. Ég var á staðnum.

Hins vegar tók afi minn, Þorsteinn Pjetursson þátt í Gúttóslagnum. Þar var barist um brauðið. Bæjarstjórnin ætlaði að lækka kaup í atvinnubótavinnu um þriðjung. Verkamenn söfnuðu liði til þess að mótmæla. Bæjarfulltrúi vinstrimanna var sagður hafa rétt stólfætur út til verkamanna, stólfætur sem nota mætti sem barefli gegn lögreglukylfunum. Ein lögregukylfanna, svört trékylfa er enn í eigu fjölskyldu minnar. Mikið var að gera á læknastofu í miðbænum á meðan á slagnum stóð og eftir hann. Fjöldi manna var handtekinn. Einn þeirra var afi minn sem líka fékk lengsta dóminn enda var hann sagður hafa hvatt til ofbeldis gegn lögreglunni. ,,Berjið naglana niður" er haft eftir honum og deilt um hvað hann hafi átt við með nöglum... 

Hægrimenn töldu sumir hverjir að þarna hefði legið nærri kommúnískri byltingu á Íslandi.  Ekki veit ég um það en hitt veit ég að þarna hefur örvænting fátækra manna og öfgar í pólítík millistríðsáranna orðið til þess að upp úr sauð.

Í gær mætti fólk hins vegar til þess að mótmæla spilltri valdapólítík og misbeitingu á lýðræðinu. Fjöldi fólks, fólk á öllum aldri kom í Ráðhúsið í hádeginu í gær. Flestir til að mótmæla - sumir til að fagna nýjum meirihluta. Hinir síðarnefndu höfðu þá sérstöðu að geymd höfðu verið sæti fyrir þá. Hægrimenn eru líka eins og menn vita, bæði árrisulir og skipulagðir, auk þess sem þeir virðast hafa tíma og tækifæri til þess að mæta snemma morguns til þess að tryggja sæti á fremstu bekkjunum.

Ég var ekki í hópi þeirra sem fór á pallana - þurfti að fara til vinnu. Hins vegar sá ég og heyrði nógu mikið til þess að sjá að hér var ekki uppþot eða ólæti að ræða. Reyndar voru sumir dónalegir eins og kom fram í sjónvarpinu en flestar létu nægja að hrópa slagorð, klappa og púa. Ef það er aðför gegn lýðræðinu þá veit ég ekki hvað að kalla athafnir Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Nú eða embættisfærslur Árna Matthiesen, eða Davíðs Oddssonar sællar minningar. Nei, ég held að sjálfstæðismönnum væri best að segja sem minnst um lýðræði. Þeir skilja ekki hugtakið.  

 


mbl.is Ekki síðan í Gúttó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband