20.4.2009 | 22:40
Rósir með Jóhönnu
Fyrir tilviljun gafst mér tækifæri til þess að fara í rósagöngu með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra síðast liðinn laugardag. Það var ótrúleg upplifun. Kannski ekkert skrítið að fólk sé ánægt og hissa þegar sjálfur forsætisráðherrann bankar upp á til þess að gefa rós. Svona frábærum móttökum átti ég samt ekki von á. Það voru allir svo glaðir, allir svo jákvæðir og allir svo hrifnir af Jóhönnu. Fólk óskaði okkur góðs gengis og meirihluti þeirra sem við hittum á göngu okkar um vesturbæinn þennan laugardagseftirmiðdag var mjög hrifinn af Jóhönnu.
Það er kannski ekki að undra enda sýna skoðanakannanir að meirihluti kosningabærra Íslendinga vill að hún verði áfram forsætisráðherra eftir kosningar.
Til þess að það verði að veruleika er aðeins ein leið: að kjósa Samfylkingunni og tryggja þannig áframhaldandi forystu Jóhönnu Sigurðardóttur í ríkisstjórn.
Athugasemdir
Jóhanna dregur vagninn...enda frábær
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 20.4.2009 kl. 23:10
Það er eitt sem ég er að spá í. Er ekki dáldið hallærislegt hjá Samfylkingunni að gefa þessar innfluttu rósir núna? Mér finnst mega hallærislegt hjá Samfylkingunni að vista vefinn sinn erlendis og vera svo eitthvað að tala um gagnahýsingu sem atvinnuveg hérlendis. Á sama hátt finnst mér ekki trúverðugt að gefa innfluttar rósir og tala svo garðyrkju og gróðurhús sem atvinnu á Íslandi.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 20.4.2009 kl. 23:12
Hver segir að þær séu innfluttar?
Ingibjörg Stefánsdóttir, 20.4.2009 kl. 23:15
Og hvað varðar gagnahýsingu og vefinn okkar þá get ég fullvissað þig um að starfsfólk Samfylkingarinnar hefur leitað hagstæðustu leiða til þess að hýsa vefinn á ódýran og öruggan hátt. Við viljum flytja út vörur og þjónustu og við vitum að við þurfum líka að flytja eitthvað inn. Hins vegar veljum við íslenskt þegar það er betra og hagstæðara, ég t.d. kaupi alltaf íslenskt grænmeti þegar það er í boði.
Ingibjörg Stefánsdóttir, 20.4.2009 kl. 23:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.