4.3.2007 | 01:06
Ráðherralisti vinstri stjórnar
Það er algeng dægradvöl hjá hægrisinnum á blogginu að setja upp mögulega ráðherralista vinstri stjórnar sem nú lítur út fyrir að geti náð meirihluta eftir næstu kosningar. Þetta er ekki bundið við þá því fjölmiðlamenn eins og Egill Helgason hafa leyft sér að spyrja um fjármálaráðherraefni Samfylkingarinnar. Við því er auðvitað bara eitt svar; það verður ekki dýralæknir! Hvaða samfylkingarmaður sem er myndi standa sig betur en núverandi fjármálaráðherra. Samfylkingarmaður í fjármálaráðherrastól myndi breyta skattkerfinu þannig að það minnkaði mismunun í samfélaginu en yki ekki á hana eins og nú er. Samfylkingarmaður í fjármálaráðherraembætti myndi lækka matarkostnað heimilanna svo um munaði enda lagði þingflokkur Samfylkingarinnar fram tillögur um slíkt löngu áður en ríkisstjórnin kom með sína útþynntu útgáfu (sjá um þetta: http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=133&mnr=23 og
http://www.althingi.is/raeda/133/rad20061204T163025.html ) Raunar virðist Samfylkingin vera eini flokkurinn sem raunverulega hefur áhuga á lífskjörum almennings í landinu.
Fjármálaráðherra úr Samfylkingunni myndi líka, eins og aðrir ráðherrar flokksins vinna gegn þenslu og þar með verðbólgu ekki gera allt til að auka hana eins og virðist vera dagskipunin í núverandi ríkisstjórn. Já, fjármálaráðherra Samfylkingarinnar myndi heldur ekki standa í því að efna til illinda við aldraða og öryrkja heldur vinna markvisst að því með heilbrigðis- og tryggingaráðherranum (sem t.d. gæti verið úr VG) að bæta kjör þeirra lífeyrisþega sem minnst hafa. Mér detta nokkrir góðir kandidatar í hug; t.d. Ágúst Ólafur Ágústsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2007 | 00:27
Það má sekta umhverfissóðana - Reglugerð 788/1999
788/1999
REGLUGERÐ
um varnir gegn loftmengun af völdum hreyfanlegra uppsprettna. I. KAFLIMarkmið, gildissvið o.fl. Markmið.1. gr.1.1 Markmið reglugerðar þessarar er að draga úr loftmengun af völdum hreyfanlegra uppsprettna, einkum af völdum vélknúinna ökutækja. Gildissvið.2. gr. 2.1 Reglugerð þessi gildir um losunarmörk fyrir mengunarefni í útblásturslofti bifreiða og prófanir á þeim m.t.t. mengunarefna. Reglugerðin gildir um viðkomandi atvinnurekstur hér á landi og í mengunarlögsögunni eins og við getur átt. Reglugerðin gildir um athafnir einstaklinga eins og við getur átt. Reglugerðin gildir ekki um flugvélar og skip.2.2 Um loftmengun á vinnustöðum gilda ákvæði laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. --------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- III. KAFLIVarnir gegn loftmengun.Meginreglur. 5. gr. 5.1 Halda skal loftmengun af völdum hreyfanlegra uppsprettna í lágmarki og viðhalda þeim gæðum sem felast í hreinu og ómenguðu lofti. Vélknúin ökutæki. 6. gr. 6.1 Eigendur eða umráðamenn vélknúinna ökutækja skulu sjá til þess að vélbúnaði sé haldið við og hann stilltur á þann hátt að ekki valdi óþarfa reyk- eða sótmyndun. 6.2 Óheimilt er að skilja ökutæki eftir í gangi þegar þau eru yfirgefin. Jafnframt er óheimilt að láta vélar kyrrstæðra ökutækja ganga lengur en í örstutta stund nema sérstaklega standi á. Regla þessi á ekki við um ökutæki lögreglu, slökkviliðs o.þ.h. 6.3 Viðkomandi heilbrigðisnefnd getur krafist þess að eigandi eða umráðamaður vélknúinna ökutækja færi bifreið sína til bifreiðaskoðunar og sýni fram á að magn mengunarefna séu innan losunarmarka samkvæmt reglum þar að lútandi.-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
IV. KAFLIAðgangur að upplýsingum, þvingunarúrræði, viðurlög o.fl.Aðgangur að upplýsingum.10. gr.10.1 Um aðgang að upplýsingum fer samkvæmt lögum um upplýsingamiðlun og aðgang að upplýsingum um umhverfismál nr. 21/1993, upplýsingalögum nr. 50/1996 og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Þagnarskylda eftirlitsaðila.11. gr.11.1 Eftirlitsaðilar og aðrir sem starfa samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem varða framleiðslu- og verslunarleynd. Sama gildir um atriði sem þeir fá vitneskju um og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.11.2 Upplýsingar og tilkynningar eftirlitsaðila til fjölmiðla skulu vera efnislega rökstuddar og þess gætt að einstakar atvinnugreinar, stofnanir eða fyrirtæki bíði ekki tjón og álitshnekki að óþörfu. Valdsvið og þvingunarúrræði.12. gr.12.1 Til að knýja á um ráðstafanir samkvæmt reglugerð þessari skal fylgja þeim þvingunarúrræðum sem mælt er fyrir um í IX. kafla reglugerðar um mengunarvarnaeftirlit þegar við á. Annars gilda ákvæði VI. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 um valdsvið og þvingunarúrræði. Viðurlög.13. gr.13.1 Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau að auki varða fangelsi allt að fjórum árum.13.2 Sektir má ákvarða lögaðila þó að sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann.
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Umhverfisráðuneytinu, 29. október 1999.
Siv Friðleifsdóttir.Magnús Jóhannesson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)