14.2.2007 | 11:04
Karlremban enn við völd í KSÍ
Í KSÍ er ekki vaninn að hlusta á konur. Sambandið fékk bréf frá Mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar í nóvember sl. þar sem spurt var um mismununandi dagpeningagreiðslur kvenna- og karlalandsliða og formaðurinn boðaður á fund nefndarinnar. Eggert Magnússon sá ekki ástæðu til að virða Mannréttindanefndina svars. Heldur ekki þó hringt væri og gengið eftir svari. Eftir að Halla Gunnarsdóttir bauð sig fram til formanns KSÍ voru dagpeningagreiðslur til karla- og kvennalandsliðanna jafnaðar. Enn var Mannréttindanefndinni ekki svarað.
Nýr formaður KSÍ; Geir Þorsteinsson, sér heldur ekki ástæðu til að svara nefndinni með öðru en dónaskap og segir í Fréttablaðinu í dag: Ég held að þarna sé einhver ekki að fylgjast með."
Þeir hækkuðu jú dagpeninga Kvennalandsliðsins til jafns við karlana EFTIR að Halla bauð sig fram en annað hefur ekki gerst. Enn er full ástæða fyrir Mannréttindanefndina að ræða við forystu KSÍ. Hún sér hins vegar ekki ástæðu til þess að virða nefndina svars - og það þó Reykjavíkurborg styrki íþróttina um verulegar upphæðir á ári hverju og eigi samkvæmt reglum borgarinnar ekki að styrkja félög sem mismuna fólki. En karlarnir hjá KSÍ sjá enga ástæða til þess að tala við Mannréttindanefndina, enda bara einhver stelpa þar í forsvari.
Það er greinilega enn full þörf fyrir að halda áfram baráttunni fyrir breytingunni innan KSÍ. Framboð Höllu var aðeins fyrsta skrefið.
Segist hunsuð af KSÍ
Mannréttindanefnd Reykjavíkur vill fá skýringar Knattspyrnusambands Íslands á meintri misjafnri stöðu kynjanna í starfi sambandsins.
Eftir að Fréttablaðið sagði frá því í fyrrahaust að KSÍ greiddi liðsmönnum karlalandsliðsins hærri dagpeninga en liðsmönnum kvennalandsliðsins sendi mannréttindanefnd Reykjavíkur Eggert Magnússyni, þáverandi formanni KSÍ, bréf þann 1. nóvember og óskaði eftir því að hann mætti á fund nefndarinnar og skýrði málið.
Marsibil J. Sæmundsdóttir, formaður mannréttindanefndarinnar, segir að bréfinu hafi verið fylgt eftir með símtölum en engin viðbrögð hafi borist frá Eggert. Hann lét af starfi formanns KSÍ um síðustu helgi.
Reykjavíkurborg styrkir mannvirkjagerð KSÍ verulega.
Mannréttindanefndin vitnar í mannréttindastefnu borgarinnar um að styrkir frá borginni séu bundnir því skilyrði að unnið sé gegn mismunun og að jafnrétti: Mannréttindanefnd getur krafið viðtakanda styrks um greinargerð um ráðstöfun hans til að fylgjast með því að hann sé nýttur á jafnréttisgrundvelli."
Marsibil J. Sæmundsdóttir
Ef við komust að þeirri niðurstöðu að þarna sé misrétti í gangi munum við vekja athygli á því innan borgarkerfisins," segir Marsbil sem kveðst vongóð um að nýr formaður KSÍ mæti á fund nefndarinnar. Ég hef fulla trú á því að Geir mæti til okkar."
Ég þyrfti eiginlega að vita betur hvað þau eru að meina," segir Geir. Dagpeningagreiðslur til kvenna og karla voru jafnaðar um miðjan janúar. Það kemur mér því á óvart að þau séu að álykta um þetta á fundi núna sjöunda febrúar. Ég held að þarna sé einhver ekki að fylgjast með."
Athugasemdir
Ég sendi son minn ekki í neinn fótbolta sem þessir karlrembupæungar koma nálægt...ALDREI
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 14.2.2007 kl. 14:31
Þar missir íslensk fótboltahreyfing af miklu efni! Ég er viss um að Tómas er efni í fótboltastjörnu
Ingibjörg Stefánsdóttir, 14.2.2007 kl. 14:46
Tómas elskar fótbolta og er mikið efni...en ég hef engar áhyggjur. Framtíðin mun færa okkur Fótboltafélag Íslands með Höllu og fleiri kvenskörungum í fararbroddi ásamt "matsjó" mönnum eins og Gísla, sem þora að eiga dætur og elska konur!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 14.2.2007 kl. 19:30
Úr því að Geir segir að búið sé að jafna dagpeningana og hafi verið gert um miðjan janúar hlýtur að vera framundan betri tíð með blóm í haga ... ha?
Berglind Steinsdóttir, 15.2.2007 kl. 10:03
Já Berglind...hann gerði þetta af sínu egin göfugu hvötum....
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 15.2.2007 kl. 20:23
Ég efast núna um að Anna hafi vitað að þetta átti að vera kaldhæðni hjá mér. Eða ertu að grínast á móti? Það hvarflar ekki annað að mér - hafi greiðslurnar verið jafnaðar um miðjan janúar eins og Geir segir - en að það hafi einmitt verið viðbragð við kröfum mannréttindanefndar, Eggert og/eða Geir hafi séð sér þann kost vænstan að taka til í ranni sínum.
Berglind Steinsdóttir, 15.2.2007 kl. 20:41
Berglind....ég þjáist vegna míns húmors eða húmorsleysis eins og sumir vilja meina...en AUÐVITAÐ var þetta djók!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 15.2.2007 kl. 22:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.