Já, hvernig væri að lengja fæðingarorlofið?

Suður-Evrópubúum fjölgar ekki lengur. Konurnar vilja ekki eiga börn. Samfélagið gerir nefnilega ekki ráð fyrir því að hægt sé að samrýma vinnu og atvinnulíf og karlarnir taka ekki nógu mikið þátt. Konurnar hafa því um tvennt að velja, eiga börn og verða heimavinnandi næstu árin - eða að sleppa því. Enn virðast ráðamenn fæstra þessara landa hafa hugmyndaflug til þess að átta sig sig á því að til þess að konurnar vilji eiga börn þá þarf lengra fæðingarorlof, barnabætur, leikskóla og svo auðvitað meiri þátttöku karlanna.

Á Kýpur virðist vera að kvikna smátýra. Það á að lengja fæðingarorlofið í 18 vikur. Hvað foreldrarnir eiga að gera eftir það fylgir ekki sögunni. Hér erum við í vandræðum þar sem illa gengur að fá pössun eftir níu mánaða fæðingarorlof. Kannski það fáist fram lenging fæðingarorlofsins eftir kosningar. Það er ef við höfum við á að gefa núverandi ríkisstjórnarflokkum frí. Það þarf nefnilega líka að hugsa um fjölgun íslensku þjóðarinnar.


mbl.is Til greina kemur að umbuna Kýpurbúum sem eignast sitt þriðja barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband