Árið 2010 - Bílar bannaðir í miðborg Reykjavíkur?

traffic_jam

Já, kannski kemur að því einhvern tímann að við áttum okkur á því að það er ekki hægt að breikka götur endalaust. Það er ekki hægt að fjölga bílastæðum endalaust. Við höfum ekki pláss fyrir fleiri bíla. Svo einfalt er það. Bílar eru að verða jafnmargir eða fleiri en fólk með bílpróf.  Ein afleiðingin af þenslunni yndislegu.

 Hver er svo afleiðingin? Bílar uppi á gangstéttum, fólk með barnavagna, að ekki sé talað um fólk í hjólastólum eða með göngugrind, kemst ekki fram hjá. Bílslys, umferðarhnútar, árekstrar, stress. Svo er það mengunin. Bílar valda mengun. Bæði vegna útblásturs og vegna svifryks.

Bílaþjóðfélagið er vont fyrir umhverfið, vont fyrir samfélagið og vont fyrir okkur. Verst er það þó fyrir börnin okkar. Sum þeirra þjást af öndunarfærasjúkdómum og geta ekki lengur farið út að leika sér, önnur þjást af hreyfingarleysi. Þau geta nefnilega ekki labbað í skólann af því að það er svo mikið af bílum sem gætu keyrt á þau. Bílarnar eru svona margir af því að það er verið að keyra börn í skólann, það er nefnilega svo mikið af bílum sem gætu keyrt á þau og þannig heldur hringavitleysan áfram út í það óendanlega.

Gísli Marteinn "fólk er búið að velja og það valdi bílana" Baldursson virðist vera að vakna. Hann hljómaði a.m.k. ágætlega í nýlegri frétt um mengun af völdum bíla. En kannski var hann bara að bregðast við spurningum um aukna mengun vegna bílaumferðar. Hvað gat hann gert annað en að hvetja til aukinna hjólreiða og notkunar almannasamgangna?

Það hljómar að vísu ekki mjög trúverðugt úr hans munni. Hann situr jú einmitt í meirihlutanum sem lét það verða eitt sitt fyrsta verk að fækka ferðum stofnleiða strætós um helming.

En kannski Gísli Marteinn hafi raunverulaga áttað sig. Kannski hann mæti í vinnuna á morgun og leggi til að nagladekk verði bönnuð í Reykjavík, að ferðum strætisvagna verði aftur fjölgað, að það verði ókeypis í strætó og háir skattar lagðir á mestu bensínströllin. Í stuttu máli að unnið verði markvisst gegn einkabílismanum.

 Við getum alltaf vonað.


mbl.is Bílaumferð bönnuð í miðborg Rómar í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mótokross Fréttir

Þurfum við þá ekki að vera með almennilegar almennings samgöngur? Var ekki bannað að keyra niður göngugötuna á Akureyri er ekki búið að opna aftur? Einnig hefur sláin sem var/er niðrá Lækjartorgi oft verið niðri en ekki í seinni tíð.

Ég held að Gísli Marteinn hafi áttað sig á að almennings samgöngur hérna á Íslandi eru jafn öflugar og Royal búðingur í skál!

Nagladekk/Heilsársdekk: Hérna á Íslandi er veðrið síbreytilegt ég sjálfur hef ekki keyrt á nagladekkjum í 3 ár, eldra fólk, óvanir ökumenn og þeir sem fara langar leiðir í vinnuna kjósa nagladekk en þó hefur það minkað rosalega á 2 til 3 árum.

Skattur á nagladekk myndi virka.. ekki eitthvað bull.. þetta getur varðað umferðar öryggi og ekki viljum við fleiri banaslys né slys..

Mótokross Fréttir, 18.2.2007 kl. 14:47

2 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Jú, auðvitað þurfum við að vera með góðar almenningssamgöngur. Að sjálfsögðu. Þveröfugt við það sem borgarstjórnarmeirihlutinn gerði sem byrjaði á því að fækka ferðum strætó.

Já, og skattur á nagladekk væri líka góð hugmynd. Það er líka spurningh hvort ekki væri hægt að skattleggja eitthvað alla þessa slyddujeppa sem er lagt hér þvers og kruss og jafnvel uppi á gangstéttum hér í miðborginni.

Ingibjörg Stefánsdóttir, 18.2.2007 kl. 15:02

3 Smámynd: Sigurður Ásbjörnsson

Ég spái því að Gísli Marteinn muni áður en langt um líður leggja fram tillögu um mislæg gatnamót Austurstrætis og Pósthússtrætis.  Hann er nú einu sinni mislægur í hugsun.

Sigurður Ásbjörnsson, 18.2.2007 kl. 15:23

4 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Ókeypis í strætó - fínt (er að virka á Akureyri og Reykjanesbæ), fleiri ferðir - líka fínt.

Banna nagladekk - held ekki. Skattur er í lagi. Harðara eftirlit með því að draga burt bíla sem leggja upp á gangstétt.

Ég er reyndar alltaf veikust fyrir neðanjarðarlest, en til þess þurfum við að fjölga Íslendingum all verulega. ;)

Svala Jónsdóttir, 18.2.2007 kl. 15:45

5 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

En Svala; höfum við eitthvað síður efni á neðanjarðarlest heldur en öllum þessum mislægu gatnamótum, bílastæðishúsum og göngum þvers og kruss?

Ingibjörg Stefánsdóttir, 18.2.2007 kl. 16:47

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég vil ekki fara í göng, en er ekki hægt að byggja ofanjarðarlestir 3-4 til Keflavíkur, Gravarvogs, Selfoss og Mosfellsbæjar...kannski Breiðholtsins líka?  Gera svo hjólabrautir undir gleri þar sem mesta rokið er!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 18.2.2007 kl. 18:19

7 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég vil sjá neðanjarðarlestarkerfi (metró) undir Reykjavík...já, Ísland er elfjallaland, en það er Japan líka...og Hvalfjarðargöngin eru ekki hrunin enn...losnum við að bíða eftir strætó í kulda og trekki, losnum við umferðaröngþveiti á götunum.

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.3.2007 kl. 11:38

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Mér finnst líka að við eigum að hafa það sem langtímamarkmið að verða milljón árið 2050- en til þess að ná því þarf að hlúa vel að barnafjölskyldum og innflytjendum.

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.3.2007 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband